Ég saumaði þessa eitt sinn í afmælisgjöf handa Villu vinkonu. Skemmtileg útfærsla, taskan opnast ótrúlega vel svo það er hægt að geyma t.d. allt hand-saums-dótið í henni; bróderískæri, málband, nálar, tvinna, fingurbjargir o.þ.h. Blómamyndin framan á er applikeruð með "needle-turn" aðferðinni og hún kemur fyrir fjórum sinnum á töskunni, allan hringinn.
Fríða Ágústsdóttir saumaði líka eina svona á Löngumýri síðasta haust. Hennar er allt öðruvísi en alls ekki síðri, alger konfektmoli, sjá hér :)







Frábært nafn á töskunni - hér eftir heitir mín líka Villutaska.
Posted by: Fríða | föstudagur, 20. janúar 2012 at 07:07
Mér finnst hún mjög falleg hjá þér, og þetta eru algjörlega mínir litir ;-)
Posted by: Hellen s. Helgadóttir | föstudagur, 20. janúar 2012 at 15:29