
Ég var svo heppin að fá að dveljast í Þýskalandi nokkur sumur þegar ég var komin í gagnfræða- og menntaskóla. Ég bjó hjá mínum dásamlegu vinum í Moseldalnum, Storck-fjölskyldunni. Þau eru vínræktendur eins og allir þeirra niðjar langt aftur í aldir. Í gegnum þau fékk ég svo líka vinnu á Waldschloss, hestabúgarði fyrir ofan Moseldalinn.

Bóndinn þar var kontidor að mennt og rak eitt sinn frægt konditor bakarí í Frankfurt. Þar hitti vel á fyrir sælkerann mig enda var það ekki sjaldan að Günther slakaði á í eldhúsinu eftir annasaman dag og galdraði fram hverja krásina á fætur annarri. Uppskriftir sáust aldrei heldur var allt bakað eftir minni og tilfinningu. Tvær bestu kökurnar sem ég fékk hjá Günther voru báðar ekta þýskar: ostakaka og plómukaka. Uppskrift að plómukökunni tókst mér ekki að fá en eitt sinn fylgdist ég með honum baka ostakökuna og stoppaði hann í hverju skrefi, tók hráefnin sem hann ætlaði að fara að fleygja ofan í skálina og náði að mæla og vigta áður en hann blandaði öllu saman. Hann hafði afskaplega gaman að þessari tilraun minni en skildi ekki þessa nákvæmisþörf í mér (ætli ég sé þá eins og nákvæmi kokkurinn í auglýsingunum? "það er ekkert dass í þessu"!! :))

Þjóðverjar nota svokallað kvark (e. speisequark) mikið, bæði í kökur, súpur og beint á brauð. Günther notaði hreint kvark í ostakökuna. Ég man að MS framleiddi eitt sinn kvark í smá tíma en það virðist ekki hafa gengið hjá þeim, ætli við Íslendingar höfum nokkuð vitað til hvers við ættum að nota það?!! Þegar ég kom heim prófaði ég skyr í staðinn og það virkaði vel, enginn munur.
Ég var þó ekki nógu sátt við að eiga ekki uppskrift að plómukökunni svo ég fór að leita í öllum bókunum mínum (áður en ég ætlaði á netið auðvitað) og viti menn, ég fann uppskrift að plómuköku í einni þeirra. Ég ákvað að prófa og kakan er ljúffeng. Gott er að nota vel þroskaðar plómur og ég held ég verði að minnka degið aðeins eða fá mér stærra form. Ég á ekki neitt gott bökuform (pæ-form) en það væri örugglega fallegra að baka hana í svoleiðis formi. Hér er s.s. afraksturinn og ég læt uppskriftina fylgja.

Plómukaka:
250 gr hveiti
1 tsk þurger
50 g sykur
125 ml ylvolg mjólk
salt á hnífsoddi
50 g smjör, bráðið
1 egg
800 g plómur
2-3 msk flórsykur
Hveitið velgt, t.d. í ofni og sett í skál. Laut gerð í miðjuna. Ger, sykur og volg mjólk hrært saman við og hellt í lautina. Hveitinu hrært saman við smátt og smátt og deigið hnoðað þar til það er slétt og sprungulaust. Látið lyfta sér á hlýjum stað í um hálftíma, eða þar til það hefur töfaldast. Á meðan eru plómurnar opnaðar til helminga og steinhreinsaðar. Ofninn hitaður í 180°c. Deigið er flatt út og lagt yfir smurt, stórt bökuform eða grunnt tertuform. Plómunum raðað í hringi á deigið; þær eiga að þekja það allt, nema barmana. Sett í ofninn og bakað í um hálftíma, eða þar til brúnirnar hafa tekið góðan lit og plómurnar eru meyrar. Flórsykur sigtaður yfir volga kökuna og hún borin fram.
p.s. Myndir og uppskrift að ostakökunni koma síðar